Tilkynningar

Sala Fjallsskírteina vikuna 30. ágúst til 2. september!

Sale of Fjallið membership cards from 30th of August 'till 2nd of september!




Á döfinni

03.09.2010 | 19.00
Nýnemakvöldið / The Freshmen Party

Hressó og Bjarni Fel


-tilboð eftir vísó; bjór eða skot á 390 kr.
-hamborgari og bjór/gos á 990 kr.
-Sesar-salat með kjúklingaspjótum og hvítvín/gos á 1190 kr.
-fimm bjóra í fötu á 2500 kr. til miðnættis alla daga.
 

Eldsmiðjan 15% afsláttur

Cintamani 15% afsláttur


10% afsláttur af Cintamani vörum
Heim
Nýnemakvöldið / The Freshmen Party
Written by Administrator   
Wednesday, 01 September 2010

*** ENGLISH VERSION BELOW FOR EXCHANGE STUDENTS ***

Góðan daginn kæru nemendur!

Jæja, nú er komið að fræga nýnemakvöldinu sem verður haldið föstudaginn 3. september á Hressó fyrir alla nemendur Fjallsins! Þar munum við kynna Fjallið og kosið verður um 1.árs fulltrúa fyrir landfræði, ferðamálafræði og jarðfræði.

Kvöldið hefst á slaginu 19:00.  Fyrir þá sem hafa áhuga endilega mætið fyrr og fáið ykkur að borða því þið fáið 15% afslátt af mat og stóran bjór á 390 kr.  Svo verður að sjálfsögðu bjór í boði eftir kl. 19:30 (þegar flestir eru komnir) svo endilega mætið tímanlega. Eftir fría bjórinn verður bjórinn á 390 kr og skotið líka.

Svo þegar allir eru búnir að koma sér vel fyrir hefst kynningin á Fjallinu, starfseminni og atburðunum, um klukkan 20:30. Erum með garðinn á Hressó algjörlega út af fyrir okkur fram á kvöld svo þetta verður mjög gott tækifæri til að kynnast fólkinu í Fjallinu og djamma með því fram á nótt :)

Fyrir þá sem vilja svo halda eitthvað annað þegar lengra líður á kvöldið er réttast að benda á að Stúdentaráð heldur partý fyrir alla háskólanema á Ellefunni kl. 23 sama kvöld þar sem einnig verða tilboð á barnum, 450 kr bjórinn og 400 kr skotið. Eina sem þarf að gera er að sýna stúdentakortið við innganginn eða fá nettan stimpil á höndina á skrifstofu SHÍ á föstudaginn.

Við minnum svo á að við munum selja skírteinin áfram í Öskju á morgun, fimmtudag, frá kl. 10-14. Einnig getið þið millifært á okkur þegar ykkur hentar í þessari viku:

Upphæð: 4.000 kr.
Reikningsnúmer: 0137-26-000780
Kennitala Fjallsins: 550486-1729

Fjallsskírteinið veitir forgang á alla viðburði og vísindaferðir á vegum Fjallsins, rútuferðir að loknum vísindaferðunum niður í miðbæ, ýmsa afslætti og megatilboð á Hressó eftir viðburði okkar! Einnig fá meðlimir Fjallsins stóru viðburðina, svo sem Haustferðina, Fáránleikana og Árshátíðina, á mun lægra verði en aðrir.

Sjáumst öll mega-hress á Hressó næsta föstudagskvöld!!! :)

Danni, Ella, Gaui, Nanna og Dagný

 

*** ENGLISH VERSION ***

Good day dear students!

We will be holding our annual freshmen party this Friday the 3rd of September in Hressó bar for all our students. We will introduce the student group and tell you all about this year’s events and activities. Then there will be elected 1. year’s representatives for both the Icelandic freshmen and the exchange students.

The night will start at 19:00. For those who want to eat can come before and get a meal with 15% discount and a large beer for 390 ISK. Then of course we will offer free beer after 19:30 (when most of the people have arrived) so it’s better to come early! When the beer is finished a large beer will cost 390 ISK and a shot will cost the same.

When everybody have arrived we will have a presentation about Fjallið, it’s events and activities this winter, around 20:30. We'll have the garden at Hressó all to ourselves so this will be a good opportunity to get to know your fellow students at Fjallið better and party with them all night long :)

For those who want to go somewhere else when the night draws on we would want to point out that the Student Counsel will throw a party at the pub 11 (Ellefan) after 23 o'clock. There will be a special offer for students, a large beer for 450 ISK and a shot for 400 ISK. You'll have to show your student card or get a stamp on your hand at the Student Counsel's office on Friday.

We also want to remind you that we will be selling our membership cards in Askja tomorrow, Thursday, between 10 and 14 o'clock. You can also transfer the money when you like this week.

Price: 4.000 kr.
Account number: 0137-26-000780
Fjallið's ID: 550486-1729

The membership card guarantees priority to all the science trips and events that Fjallið organizes, bus trips downtown from most of the same events, various discounts a super-discount at Hressó (a pub downtown) after the events. Members of Fjallið also pay considerably less for all bigger events, for example the fall trip, the “ridiculous games” and the “prom”.

We'll see you all über-happy at Hressó next Friday night!!! :)

Danni, Ella, Gaui, Nanna and Dagný

View Comments (30)Add Comments
 
Fótboltamótið og spurningakeppnin / The soccer and the quiz tournament
Written by Administrator   
Wednesday, 01 September 2010

*** English version below ***

Hæhæ fótboltasnillingar og gáfufólk!

Á morgun fara fram fótboltamót og spurningakeppni Stúdentaráðs milli nemendafélaga í HÍ. Margir hafa svarað á Facebook um að þeir muni mæta en við vildum bara brýna fyrir ykkur að því fleiri sem mæta, því betra. Betra að hafa aðeins of marga í lið, bæði í fótboltann og spurningakeppnina, því þá getum við skipt inn á varamönnum eða fólk staðið og hvatt liðin okkar áfram :)

Fótboltamótið fer fram á stóra U-laga grasvellinum fyrir framan Aðalbygginguna og spilar Fjallið á eftirfarandi tímum (hver leikur er 15 mínútur):

10:15 – Fjallið vs Hvarf (Efna-, lífefna-, og efnaverkfræðinemar)
11:00 – Fjallið vs Haxi (Líffræðinemar)
11:30 – Fjallið vs Mímir (Íslenskunemar)

Úrslitin í fótboltamótinu fara svo fram á föstudaginn milli 10 og 12.

Spurningakeppnin fer fram í stofum HT-300 og HT-301 (3. hæð Háskólatorgs) og spilar Fjallið á eftirfarandi tímum (hver keppni er 15 mínútur):

11:30 – Fjallið vs Orator (Lögfræðinemar)
11:45 – Fjallið vs Politica (Stjórnmálafræðinemar)

Úrslitin í spurningakeppninni fara svo fram á föstudaginn milli 10 og 12.

ÁFRAM FJALLIÐ! :)

 

*** English version ***

Hihi soccer legends and geniuses!

The Student Counsil has organized a soccer and a quiz tournament for tomorrow between different student groups at the university. Many have replied on Facebook that they will attend but we just want to remind you all that the more that show up, the better. It's more convenient to have a bit too many for each team, both for the soccer and the quiz tournament, so that we can either have substitutes or people standing by rooting for our teams :)

The soccer tournament takes place on the big U-shaped field in front of the university's main building and Fjallið's matches will be played as follows (each match lasts for 15 minutes):

10:15 – Fjallið vs Hvarf (Chemistry, biochemistry and bioengineering students)
11:00 – Fjallið vs Haxi (Biology students)
11:30 – Fjallið vs Mímir (Icelandic (linguistics) students)

The soccer finals take place next Friday between 10 and 12 o'clock.

The quiz tournament takes place in study rooms HT-300 and HT-301 (Háskólatorg's 3rd floor) and Fjallið's quizzes will be played as follows (each quiz lasts for 15 minutes):

11:30 – Fjallið vs Orator (Legal students)
11:45 – Fjallið vs Politica (Politics students)

The quiz finals take place next Friday between 10 and 12 o'clock.

GO FJALLIÐ! :)

Add Comments
 
Sala Fjallsskírteina / Membership cards on sale
Written by Administrator   
Sunday, 29 August 2010

*** English version below ***

Hæhæ!

Á morgun byrjum við að selja Fjallsskírteinin við hliðina á kaffistofunni í Öskju.

Salan fer fram á eftirfarandi tímum í vikunni:
Mánudagur: 10-14
Þriðjudagur: 10-14
Miðvikudagur: 10-14

Skírteinin kosta 4.000 kr og við tökum við reiðufé eða millifærslu. Þið getið annað hvort millifært gegnum okkar tölvu í Öskju eða þegar ykkur hentar:

Reikningsnúmer: 0137-26-000780
Kennitala Fjallsins: 550486-1729

Munið bara að senda kvittun á This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it svo við vitum hver er á bak við millifærsluna :)

Það verður hellingur í gangi í vetur hjá Fjallinu eins og þið getið séð í bæklingnum okkar (http://www.facebook.com/album.php?aid=38764&id=1595310201&l=7b883bc18c) svo það er ekki eftir neinu að bíða! Þið fáið mest út úr skírteininu með því að taka þátt frá byrjun :)

Sjáumst í vikunni! :)

Danni, Ella, Gaui, Nanna og Dagný


*** English version ***

Hihi!

Tomorrow the membership cards for Fjallið will go on sale next to the cafeteria in Askja.

The cards will be sold the following hours:
Monday: 10-14
Tuesday: 10-14
Wednesday: 10-14

The cards cost 4.000 ISK and we'll accept cash or money transfer. You can either transfer the money with our computer in Askja or in your own time:

Account number: 0137-26-000780
Fjallið ID number: 550486-1729

Just remember to send the receipt to This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it so we know who's behind the transfer :)

Fjallið will provide lots of events and activities this winter as you can read in our pamphlet (http://www.facebook.com/album.php?aid=38873&id=1595310201&l=a9c1fd1c3f) so there's no use waiting! You'll get the most out of the membership by participating from start :)

See you this week! :)

Danni, Ella, Gaui, Nanna and Dagný

Add Comments
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Results 1 - 4 of 214

Könnun

Ætlar þú að mæta á nýnemakynninguna og hópeflið?
 

Fjöldi heimsókna

999313

Íslenski Barinn 20%

www.islenskibarinn.is

Besti bjórinn

Serrano 13% afsláttur

© 2010 Fjallið, félag jarð- land- og ferðamálafræðinema
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.