|
*** ENGLISH VERSION BELOW FOR EXCHANGE STUDENTS *** Góðan daginn kæru nemendur! Jæja, nú er komið að fræga nýnemakvöldinu sem verður haldið föstudaginn 3. september á Hressó fyrir alla nemendur Fjallsins! Þar munum við kynna Fjallið og kosið verður um 1.árs fulltrúa fyrir landfræði, ferðamálafræði og jarðfræði. Kvöldið hefst á slaginu 19:00. Fyrir þá sem hafa áhuga endilega mætið fyrr og fáið ykkur að borða því þið fáið 15% afslátt af mat og stóran bjór á 390 kr. Svo verður að sjálfsögðu bjór í boði eftir kl. 19:30 (þegar flestir eru komnir) svo endilega mætið tímanlega. Eftir fría bjórinn verður bjórinn á 390 kr og skotið líka. Svo þegar allir eru búnir að koma sér vel fyrir hefst kynningin á Fjallinu, starfseminni og atburðunum, um klukkan 20:30. Erum með garðinn á Hressó algjörlega út af fyrir okkur fram á kvöld svo þetta verður mjög gott tækifæri til að kynnast fólkinu í Fjallinu og djamma með því fram á nótt :) Fyrir þá sem vilja svo halda eitthvað annað þegar lengra líður á kvöldið er réttast að benda á að Stúdentaráð heldur partý fyrir alla háskólanema á Ellefunni kl. 23 sama kvöld þar sem einnig verða tilboð á barnum, 450 kr bjórinn og 400 kr skotið. Eina sem þarf að gera er að sýna stúdentakortið við innganginn eða fá nettan stimpil á höndina á skrifstofu SHÍ á föstudaginn. Við minnum svo á að við munum selja skírteinin áfram í Öskju á morgun, fimmtudag, frá kl. 10-14. Einnig getið þið millifært á okkur þegar ykkur hentar í þessari viku: Upphæð: 4.000 kr. Reikningsnúmer: 0137-26-000780 Kennitala Fjallsins: 550486-1729 Fjallsskírteinið veitir forgang á alla viðburði og vísindaferðir á vegum Fjallsins, rútuferðir að loknum vísindaferðunum niður í miðbæ, ýmsa afslætti og megatilboð á Hressó eftir viðburði okkar! Einnig fá meðlimir Fjallsins stóru viðburðina, svo sem Haustferðina, Fáránleikana og Árshátíðina, á mun lægra verði en aðrir. Sjáumst öll mega-hress á Hressó næsta föstudagskvöld!!! :) Danni, Ella, Gaui, Nanna og Dagný *** ENGLISH VERSION *** Good day dear students! We will be holding our annual freshmen party this Friday the 3rd of September in Hressó bar for all our students. We will introduce the student group and tell you all about this year’s events and activities. Then there will be elected 1. year’s representatives for both the Icelandic freshmen and the exchange students. The night will start at 19:00. For those who want to eat can come before and get a meal with 15% discount and a large beer for 390 ISK. Then of course we will offer free beer after 19:30 (when most of the people have arrived) so it’s better to come early! When the beer is finished a large beer will cost 390 ISK and a shot will cost the same. When everybody have arrived we will have a presentation about Fjallið, it’s events and activities this winter, around 20:30. We'll have the garden at Hressó all to ourselves so this will be a good opportunity to get to know your fellow students at Fjallið better and party with them all night long :) For those who want to go somewhere else when the night draws on we would want to point out that the Student Counsel will throw a party at the pub 11 (Ellefan) after 23 o'clock. There will be a special offer for students, a large beer for 450 ISK and a shot for 400 ISK. You'll have to show your student card or get a stamp on your hand at the Student Counsel's office on Friday. We also want to remind you that we will be selling our membership cards in Askja tomorrow, Thursday, between 10 and 14 o'clock. You can also transfer the money when you like this week. Price: 4.000 kr. Account number: 0137-26-000780 Fjallið's ID: 550486-1729 The membership card guarantees priority to all the science trips and events that Fjallið organizes, bus trips downtown from most of the same events, various discounts a super-discount at Hressó (a pub downtown) after the events. Members of Fjallið also pay considerably less for all bigger events, for example the fall trip, the “ridiculous games” and the “prom”. We'll see you all über-happy at Hressó next Friday night!!! :) Danni, Ella, Gaui, Nanna and Dagný |